But at the same time, it’s a quote from Wind In The Willows, from around 1930s, when Ratty gets a car and says, “here today … tomorrow, next week!” and flies off! And for us, or at least for me, people have said, “A Series of Event is a one-hit wonder, here today, gone tomorrow”, It is true but still not true; the Event will disappear but we wont. We are here to stay and together we are strong.(Brot úr viðtali við Reykjavík Dance Festival 2012)
It is your dance, our movement
.A Series of Event er ekki danshátíð í hefðbundnum skilningi. A Series of Event er tíu daga kóreógrafía í formi danshátíðar sem á nýjan hátt opnar fyrir samræður meðal listamanna og áhorfenda með það fyrir augum að deila þekkingu og miðla aðferðum listgreinarinnar. Þar verður sjónum beint að samtímadanslist sem lifandi og gagnvirku listformi.Danshátíðir, líkt og aðrar hátíðir lista, snúast nú í sífellt ríkari mæli um markaðssetningu verka og viðskipti með þau.
Það er því miður alltof algengt að danshöfundar ferðist með verk sín milli hátíða, heimshornanna á milli, án þess aðtóm gefist til þess að taka þátt í hátíðunum að öðru leyti eða til að láta sig varða og hafa mótandi áhrif á það umhverfi sem fyrir er. Þess vegna höfum við ákveðið að beita nýrri nálgun við skipulagningu Reykjavík Dance Festival þetta árið. Með nýjum aðferðum leggjum við áherslu á samfélagshugtakið og kynnum sérstaka útfærslu á danshátíðinni í ár með yfirskriftinni A Series of Event.Með A Series of Event verður þrjátíu listamönnum, bæði íslenskum og erlendum, boðin formleg þátttaka þar sem hver og einn tekur virkan þátt á öllum stigum hátíðarinnar í þá tíu daga sem hún varir. Þar sem A Series of Event er hugsuð sem kóreógrafía munu þátttakendur sjálfir móta útfærslu hátíðarinnar, í stað þess að hátíðin móti þátttakendur sína. Í þessari tíu daga kóreógrafíu verður leitast við að kalla fram samfélagsvitund og virkja samræðu sem stuðlar að framþróun og endurnýjun á sviði danslistar og kóreógrafíu.
Listamönnunum þrjátíu verður boðin þátttaka með tilliti til þeirrar aðferðafræði sem þeir hafa kosið sér í sínu starfi, en ekki til þess að kynna eitt tiltekið, sérvalið verk. Þetta eru listamenn sem á einhvern hátt fást við hegðunarmynstur, væntingar og hírarkíu tengd leikhúsi og ýmsum rótgrónum leiðum við listræna framsetningu og tjáningu. Örlæti og gagnsæi eru lykilatriði. Hátíðin sjálf verður kóreógrafía sem byggist á röð viðburða, mótuðum af listamönnunum sem hver um sig, og jafnframt sem heild, bera ábyrgð á að meðhöndla hugmyndina um danshátíð sem kóreógrafíu.
A Series of Event mun því byggjast á viðburðum sem miða að því að stækka hugtakið kóreógrafía með ýmsum meðölum: svitamettuðum málstofum, matarboðum, námskeiðum, skyndi-bókaútgáfu, ofurpönkuðum danssessjónum, auk epískra sýninga. Meðölin stuðla ennfremur að því að gera áhorfendum kleift að gerast virkir þátttakendur í danssamfélaginu á margan hátt, ekki eingöngu sem leikhúsgestir og miðakaupendur.
Meginmarkmið A Series of Event er að skapa umhverfi þar sem allir eru velkomnir, óháð fyrri reynslu af dansi eða kóreógrafíu. Hluti af því að bjóða fólk velkomið er að gera hátíðina aðgengilega öllum og því mun A Series of Event gera þá kröfu að frír aðgangur verði að öllum viðburðum hátíðarinnar.